Skólasetning 2026-2027

Hvassaleitisskóli stór 2

Starfsfólk Hvassaleitisskóla býður nemendur og foreldra hjartanlega velkomin til starfa á nýju skólaári. 

Skólasetning 2. - 7. bekkja í Hvassaleitisskóla verður mánudaginn 24.ágúst kl. 9:00 og í kjölfarið verða námskynningar fyrir foreldra. Kennsla samkvæmt stundatöflum hefst svo þriðjudaginn 25. ágúst hjá 2.-7. bekk.

Nemendaviðtöl væntanlegra 1. bekkinga fara fram mánudaginn 24. og þriðjudaginn 25.ágúst. Kennsla samkvæmt stundatöflu hefst miðvikudaginn 26.ágúst hjá 1. bekk.

Við hlökkum til að taka á móti bæði nýjum og eldri nemendum og hefja saman spennandi skólaár 2026-2027.