Bekkurinn minn
Höfundur barnabókaflokksins Bekkurinn minn, Yrsa Þöll Gylfadóttir, kom í heimsókn í Hvassaleitisskóla og las úr nýjustu bókinni sinni, Hendi, sem fjallar um fótboltastrákinn Hallgrím og eftirminnilegt atvik á battavellinum.
Bækurnar hafa yfirskriftina „Létt að lesa” og eru sérstaklega ætlaðar byrjendum í lestri. Það er skemmst frá því að segja að eftir upplesturinn hafa bækurnar notið gríðarlegra vinsælda í skólasafninu og ekki hjá því komist að kaupa aukaeintök til að anna eftirspurninni.